Þegar þú millifærir upphæð sem er yfir 10 milljónir á opnunartíma þ.e. á virkum degi milli 9-16 þá birtist greiðslan fyrst um sinn eins og hún er í bið í færsluyfirlitinu í appinu. Hún birtist þannig á meðan fjárstýring indó hleypir greiðslunni áfram.
Ef þú ert að gera millifærslu sem er yfir 10 milljónir utan opnunartíma, þá færðu villuskilaboð í appið, því að kerfin sem miðla stórum greiðslum á milli banka eru lokuð. Það þarf þá að skrá millifærsluna aftur á opnunartíma.