Hvað eru varnir gegn peningaþvætti og af hverju skiptir það máli ?

Flest okkar hugsa líklega ekki mikið um peningaþvætti dags daglega en það er mikilvægt að skilja hvað peningaþvætti er og mikilvægi þess að viðhalda góðum vörnum. 

Í stuttu máli – hvað er peningaþvætti?

Peningaþvætti er þegar einhver reynir að koma ólögmætum fjármunum í umferð eins og þeir séu löglegir. Þetta getur til dæmis átt sér stað þegar tekjur af eiturlyfjasölu, fjárkúgun eða spillingu eru færðar yfir í lögmæt kerfi – með því að kaupa fasteignir, stofna fyrirtæki eða færa fé milli landa. 

Af hverju skiptir þetta máli fyrir okkur öll?

Peningaþvætti getur haft áhrif á alla. Þegar óheiðarlegt fjármagn kemst óáreitt inn í fjármálakerfið, eykur það hættu á spillingu, efnahagslegum sveiflum og dregur úr trausti á kerfinu sem við treystum öll á.

Varnir gegn peningaþvætti geta einnig dregið úr fjármögnun hryðjuverka, mannsal og önnur alvarleg atvik. 

Til að sporna við peningaþvætti hafa verið sett skýr lög sem ákveðnir aðilar einsog indó þurfa að fylgja. Þau eiga að gera það mun erfiðara fyrir þá sem afla sér fjármuna með ólöglegum hætti að koma peningunum í umferð og halda óheiðarlegri starfsemi áfram.

Hvernig indó vinnur gegn peningaþvætti?

indó tekur þessar skyldur alvarlega en þær snúast ekki bara um reglur heldur líka um ábyrgð indó til þess að þekkja sína viðskiptavini og gera það sem í okkar valdi stendur til þess að koma í veg fyrir peningaþvætti í gegnum okkar reikninga. 

Við beitum ýmsum aðgerðum til að tryggja að viðskipti séu traust og gagnsæ:

  • Áreiðanleikakannanir : Allir viðskiptavinir þurfa að fylla út áræðinleikakönnun þegar stofnaður er reikningur og er það partur af lögum að slík könnun sé gerð í upphafi viðskiptasambands og með reglulegu millibili. 

  •  Aukin Áreiðinleikakönnun: Í ákveðum tilvikum s.s ef viðkomandi er með stjórmálaleg tengsl eða frá áhættusömu ríki samkvæmt lista seðlabankans þarf að framkvæma aukna áreiðaðleikakönnun. Sú könnun er gerð í þeim tilgangi að við þekkjum viðskiptavini sem falla í fyrr nefnda flokka en betur. 

  • Við skoðum uppruna fjármuna og auðs, þegar þess þarf, og byggjum allar ákvarðanir á traustum og rekjanlegum upplýsingum.

  • Öll gögn eru meðhöndluð með varúð og trúnaði – þau eru aðeins notuð til að uppfylla lagaskyldur og eru aldrei nýtt í öðrum tilgangi.

    Hér má finna lög um varnir gegn peningaþvætti 

    Hér má finna persónuverndarstefnu indó 

Var þessi grein gagnleg?

1 af 1 fannst þessi grein gagnleg

Ertu með fleiri spurningar? Senda fyrirspurn

Athugasemdir

0 comments

Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.