indó lánið er ósköp venjulegt lán á jöfnum afborgunum - nema með ýmsum lánatrixum. Þetta er tilvalið lán til að taka fyrir t.d. framkvæmdum - eða til að borga niður önnur óhagstæðari lán.
Við bjuggum til lánatrixin til að leyfa þér að stýra betur ferðinni. Sumir mánuðir eru betri en aðrir - og við vitum að þú nennir ekkert að heyra í okkur í hvert sinn sem þú vilt aðlaga greiðslurnar. Í betri mánuðum viltu kannski borga aðeins meira af láninu til að lækka vextina. Það er besta sparnaðarráð í heimi. Þá skellir þú láninu á túrbó - og velur að borga aðeins meira af láninu næstu mánuði (án þess að skuldbinda þig). Það er svo allt í lagi ef þú treystir þér ekki lengur að borga aðeins meira af láninu. Þessi sjálfvirka aukagreiðsla fer ekki í innheimtu ef þú ræður ekki við hana.
Sumir mánuðir eru erfiðari en aðrir - og stundum. Þess vegna getur þú sett lánið í slökun í 3 mánuði. Þú getur líka fryst lánið í einn mánuð á ári í appinu.
Athugasemdir
0 comments
Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.