Lánatrixin eru til að hjálpa þér að stjórna láninu þínu og veita þér sveigjanleika. Við vitum að þú nennir ekki að heyra í bankanum þínum þegar þú vilt borga meira inn á lánið eða fá smá greiðslufrest.
Túrbó
Þetta er uppáhalds lánatrixið okkar! Með því að skella indó láninu þínu á túrbó borgarðu aðeins meira af láninu en þú ætlaðir þér í hverjum mánuði. Það er mjög sniðugt ef þú vilt prófa að sjá hvort þú ráðir við að borga aðeins meira af láninu án þess að lofa okkur því.
Það er gott að hafa sveigjanleikann - þess vegna getur þú slökkt á túrbó ef þú sérð ekki fram á að geta borgað extra næstu mánaðamót. Ef það er ekki nægur peningur inn á debetreikningnum þínum fyrir túrbógreiðslunni þá er það ekkert mál. Túrbó greiðslur fara aldrei í innheimtu.
Slökun
Þú getur sett lánið í slökun þegar þú ferð í slökun. Þegar þú hefur greitt a.m.k. þrisvar sinnum af láninu geturðu sett lánið í slökun slakið þið bæði á í 3 mánuði. Þú borgar þú bara vextina af láninu í þessa þrjá mánuði.
Svo eru sumir mánuðir erfiðari en aðrir. Þú getur svo jafnvelt stillt lánið á túrbó eftir slökunina og náð þér aftur á sama stað.
Frysting
Þú getur fryst lánið í einn mánuð og ekki borgað neitt þann mánuð. Þetta er hægt að gera einu sinni á ári.
Lánið hækkar svo á móti þar sem greiðslan sem þú borgaðir ekki þann mánuðinn - og leggst ofan á höfuðstólinn. Eins og með slökunina geturðu fryst lánið eftir að þú hefur greitt þrisvar sinnum af láninu.
Ertu með hugmynd að fleiri lánatrixum sem geta aðstoðað þig við lánið? Láttu okkur vita!
Athugasemdir
0 comments
Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.