Dúett er tveggja manna indó upplifun fyrir sameiginleg fjármál heimilisins! Nú getur þú boðið betri helmingnum í Dúett í indó!
Þið getið verið með sameiginlegan Dúett reikning fyrir sameiginleg útgjöld heimilisins og valið að deila kröfum ykkar og rafrænum skjölum með hvort öðru.
Ef þið eruð með Dúett reikning - fáið þið sitt hvort kortið í símann. Það er ekki hægt að fá plastkort með Dúett reikningi, a.m.k. eins og er.
Ef þið deilið kröfum þá getið þið getið bæði séð og borgað kröfur hvors annars og fáið miklu betri yfirsýn yfir sameiginlegu útgjöldin hver mánaðarmót - saman!
Við vonum að Dúettinn geti vaxið og dafnað í takt við ykkar samband.
Hvað þarf þinn Dúett? Sendu okkur línu!
Athugasemdir
0 comments
Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.