Það er auðvitað gott að geta alltaf gripið í plastkortið, sérstaklega á þeim stöðum í heiminum þar sem ekki er hægt að greiða með símanum. Þú getur að sjálfsögðu ennþá fengið plastkort frá okkur en raunin er sú að plastkortum fylgir alltaf einhver kostnaður.
Það kostar að framleiða kortið, pakka því inn og senda það heim til þín. Auk þess sem framleiðslan, umbúðirnar og sendingin eru ekki umhverfisvæn. Það er líka óþarfa sóun og kostnaður að fá sent plastkort ef þú ert aðallega að greiða með indó-kortinu í símanum.
Þess vegna er ókeypis að setja kortið í símann eða úrið, en þessar 1.200 kr. fyrir plastkortið eru til að dekka framleiðslu- og sendingarkostnað.
Ef þú ákveður að sleppa plastkortinu til að byrja með en vilt síðan fá það seinna (eins og fyrir næstu útlandaferð) þá er ekkert mál að panta plastkort.
Það eina sem þú þarft að gera til að panta plastkort er að:
Opna indó appið
Velja „Kort“ neðst fyrir miðju
Ýtir þar á „Panta nýtt kort“ ofarlega til hægri
Þaðan geturðu valið þér kortið sem þér finnst flottast (bleikt eða grænt kort) og fengið kortið sent heim að dyrum á næstu 7-10 virku dögum. Í kjölfarið færðu senda kröfu í kröfuhólfið þar sem þú getur greitt fyrir plastkortið.
Athugasemdir
0 comments
Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.