Athugasemd við kortafærslu

Þarftu að hefja endurkröfuferli?

Kannast þú ekki við færslu á bak við kortið þitt? Eða var færslan skuldfærð tvisvar? Pantaðir þú vöru eða þjónustu sem barst ekki eða ertu með færslu fyrir hærri upphæð en þú samþykktir?

Þú gætir átt rétt á endurkröfu og þetta er það sem þú þarft að gera!

 

Ef þú kannast ekki við færslu þá þarftu að gera eftirfarandi: 

  1. Loka kortinu. 
    Þú getur fryst kortið strax í indó appinu til að koma í veg fyrir frekari misferli en til að hefja endurkröfuferli þarftu að hafa samband við okkur á opnunartíma þjónustuvers og loka kortinu alveg. Ekki er hægt að gera endurkröfu á færslu á þeirri forsendu að hún sé sviksamleg nema korti sé lokað fyrst.
  2. Senda okkur línu í gegnum netspjallið í indó appinu.Þú finnur netspjallið með því að fara í „Allskonar“ neðst í hæga horninu. Ástæðan fyrir því er að netspjallið er í auðkenndu umhverfi og við þurfum rafræna auðkenningu fyrir allar aðgerðir sem snerta á reikningum viðskiptavina okkar. Vinsamlegast taktu þar fram nafn söluaðila, dagsetningu færslunnar og tilvísun heimildar. Þú finnur þessar upplýsingar með því að ýta á færsluna í indó appinu.

ATH. Mikilvægt er að skila inn þeim gögnum sem við óskum eftir innan 90 daga frá færsludagsetningu. Eftir þann tíma er frestur til að framkvæma endurkröfu útrunninn. 

Ef færslan var framkvæmd og samþykkt með PIN númeri, með greiðslulausn í farsíma eða í appinu (3D secure) er því miður ekki hægt að óska eftir endurkröfu á þeirri forsendu að hún sé sviksamleg. 

 

Ef þú kannast við færslu en hefur athugasemd við hana:

Færslan kom inn oftar en einu sinni, þú borgaðir meira en þú samþykktir eða varan eða þjónustan var ekki móttekin.

  1. Hafa samband við söluaðila og reyna að leysa úr málinu og fá færsluna leiðrétta.
  2. Ef ekki tekst að leysa málið beint við söluaðila hefur þú samband við okkur og við aðstoðum við þig með endurkröfuferlið.
  3. Senda okkur línu í gegnum netspjallið í indó appinuÞú finnur netspjallið með því að fara í „Allskonar“ neðst í hæga horninu. Ástæðan fyrir því er að netspjallið er í auðkenndu umhverfi og við þurfum rafræna auðkenningu fyrir allar aðgerðir sem snerta á reikningum viðskiptavina okkar. Vinsamlegast taktu þar fram nafn söluaðila, dagsetningu færslunnar og tilvísun heimildar. Þú finnur þessar upplýsingar með því að ýta á færsluna í indó appinu.
  4. Það er einnig mikilvægt að senda inn öll þau gögn sem þú telur að muni styðja við mál þitt. Þau gögn sem um ræðir eru: 
    1. Upplýsingar að reynt hafi verið að leysa málið beint við söluaðila og með hvaða hætti.
    2. Afrit af pöntun eða upplýsingar um hvað var pantað og hvenær áætlaður afhendingardagur vöru/þjónustu var.
    3. Staðfesting um að vara/þjónusta hafi ekki verið móttekin.
       

Gögn þurfa að berast innan 90 daga frá því að vara eða þjónusta var ekki móttekin. Eftir þann tíma er frestur til að framkvæma endurkröfu útrunninn. 


Endurkröfuferlið tekur mið af að hámarki 35 færslum sem eru ekki eldri en 90 daga gamlar. Til þess að flýta fyrir ferlinu og koma í veg fyrir að málið falli niður er mikilvægt að öll gögn sem styðja athugasemd við færslu fylgi umsókninni.

Var þessi grein gagnleg?

21 af 39 fannst þessi grein gagnleg

Ertu með fleiri spurningar? Senda fyrirspurn

Athugasemdir

1 comment

  • Comment author
    Feras Abou Ghazi

    Hello.

     I froze my debit card due to a fraudulent transaction.

     I'd like to request another card to avoid any serious inconvenience.

     Thank you.

    0

Vinsamlegast innskráning til að skilja eftir athugasemd.