Hópbaukur er sparibaukurinn fyrir þig og þína bestu, hvort sem það eru vinir, fjölskylda, vinnufélagar eða hvers konar kumpánar 👯
Í Hópbaukinn leggið þið saman í púkk og safnið fyrir næsta ferðalagi, brúðargjöfinni eða árshátíðinni, og með sparitrixi verður það strax skemmtilegra og auðveldara að spara 🎉
Hver sem stofnar baukinn er Baukstjóri og býður hinum að vera memm. Svo fylgist þið með sparnaðinum vaxa og sjáið hvað hvert og eitt ykkar hefur lagt inn.
Hópbaukurinn rúmar allt að 100 manns, svo þú getur boðið öllum þínum bestu og farið að spara meira með miklu fleirum.
Ef einhver í hópnum er ekki í indó er það ekkert mál, því það er hægt að millifæra inn á Hópbaukinn úr hvaða banka sem er 🙌
Athugasemdir
0 comments
Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.