Hver sem stofnar Hópbaukinn á reikninginn lagalega og er sá eini sem getur tekið peninga út úr honum og ráðstafað þeim. Peningarnir sem þið leggið inn eru því lagalega eign Baukstjórans, jafnvel þótt þeir séu hugsaðir fyrir hópinn. Baukstjórinn ber líka ábyrgð á fjármunum og réttri skráningu þeirra gagnvart skattayfirvöldum.
Baukstjórinn sér um úttektirnar fyrir hópinn, en þið hin getið lagt inn og fylgst með hverri krónu. Það er því gott að velja Baukstjóra sem allir treysta 🤝
Appið sýnir öll framlög skýrt, svo allir sjá hvað hver og einn hefur lagt inn. Það hjálpar til við að koma í veg fyrir misskilning. En ef upp kemur ágreiningur um hver á hvað, þá tekur indó ekki þátt í honum og hópurinn þarf að leysa málið sín á milli.
Gott ráð: Ákveðið fyrirfram hvernig peningarnir verða notaðir og hvað gerist ef markmiðinu er ekki náð 😉
Athugasemdir
0 comments
Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.