Ég er ekki í indó. Má ég samt vera memm í Hópbauk?

Já, auðvitað! 🙌 Hver sem er getur verið memm, líka þau sem eru ekki í indó. Þú þarft hvorki appið né nýjan reikning, því þú millifærir bara inn á Hópbaukinn úr hvaða heimabanka sem er, eins og hverja aðra millifærslu.

[Ef þú stofnar síðan indó reikning getur Baukstjórinn boðið þér í baukinn. Þá sérðu í appinu hvað er búið að safna og hvað hvert og eitt hefur lagt inn, og getur virkjað sparitrix til að spara sjálfvirkt.]

Þú þarft bara reikningsnúmer bauksins og nafn og kennitölu Baukstjórans. Einhver í hópnum sem er í indó getur sent þér þetta:

  1. Opna Hópbaukinn í indó appinu.
  2. Ýta á þrjá punkta efst í hægra horninu.
  3. Ýta á Afrita við Eigandi (nafn og kennitala Baukstjórans) og við Reikningsnúmer, og senda þér.

Svo tengir indó greiðsluna sjálfkrafa við nafnið þitt og kennitölu, og hún birtist í meðlimalistanum undir flipanum Aðrir. Þá sjá hin í hópnum að þú ert með 🎉

Var þessi grein gagnleg?

0 af 0 fannst þessi grein gagnleg

Ertu með fleiri spurningar? Senda fyrirspurn

Athugasemdir

0 comments

Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.