Allt er uppi á borðum 🧾 Þegar Baukstjórinn tekur út úr Hópbauknum getur kvittun eða minnismiði fylgt með, til dæmis mynd af reikningnum fyrir gistingunni eða stutt skýring á því í hvað peningarnir fóru.
Svona finnurðu það í indó appinu:
- Opnaðu Hópbaukinn og farðu í Færslur.
- Ýttu á úttektina.
- Í færsluupplýsingunum sérðu viðhengið.
Gleymdist kvittunin? Ekkert mál, Baukstjórinn getur bætt henni við eftir á í færsluupplýsingunum 👍 Þannig veit allur hópurinn nákvæmlega í hvað peningarnir fóru.
Athugasemdir
0 comments
Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.