Þetta snýst bara um eitt (eða tvö eða fleiri): hvað eru mörg að spara?
- 💰 Sparibaukur: Þú sparar fyrir þig. Þú getur átt marga Sparibauka, sérsniðið þá með mynd og nafni, sett þér markmið og virkjað sparitrix.
- 💕 Dúett baukur: Þið tvö sparið saman. Dúett baukurinn er fyrir þau sem eru í Dúett í indó og vilja deila fjármálum með hvort öðru.
- 👯 Hópbaukur: Hópurinn sparar saman, allt að 100 manns. Baukstjórinn stofnar baukinn og sér um úttektir, en hin leggja inn á Hópbaukinn og geta fylgst með sparnaðinum vaxa. Þau sem eru ekki í indó geta líka tekið þátt með millifærslu.
Athugasemdir
0 comments
Ekki er hægt að skrifa athugasemdir við grein.